“Heillandi Peking” Ljósmyndasýning um ferðalög haldin í Reykjavík

“Heillandi Peking” Ljósmyndasýning um ferðalög haldin í Reykjavík

(Aðeins sem tilvísun og háð viðburðinum)

Reykjavík, Íslandi, 02-Sep-2017 — /EuropaWire/ — „Heillandi Peking“, ljósmyndasýning um ferðalög var haldin í Reykjavík þann 11. ágúst í boði framkvæmdastjórnar Peking um þróun ferðamála (Beijing Municipal Commission of Tourism Development). Zhang Weidong, kínverski sendiherrann á Íslandi, Song Yu, formaður framkvæmdastjórnar Peking um þróun ferðamála, og Inga Hlín Pálsdottir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu mættu á setningarathöfnina og fluttu ræður.

Tæplega hundrað glæsilegar ljósmyndir prýða sýninguna „Heillandi Peking“, sem framkvæmdastjórn Peking um þróun ferðamála hefur safnað um árabil frá bæði innlendum og erlendum ljósmyndurum. Af þeirri ástæðu hafa þær mikið fagurfræðilegt gildi. Þemu þessarar ljósmyndasýningar eru hin forna höfuðborg, tískuborg, menning og lífsstíll og stórborg nútímans, og hún hefur fengið mikla athygli frá innlendum fréttamiðlum og almenningi.

Þessi kynningarviðburður hefur styrkt tvíhliða samskipti og samvinnu við þróun ferðamála, bætt skilning Íslendinga á ferðamálatækifærum í Peking og tekið virkan þátt í að stækka íslenskan ferðaþjónustumarkað fyrir Peking.

Frá árinu 2017 hafa löndin viðhaldið diplómatískum tengslum í meira en 46 ár. Að auki er Ísland mikilvægt land fyrir norðurátt hinnar nýju silkileiðar (The Belt and Road) og Kína er helsti viðskiptaaðili Íslands í Asíu og sjöunda stærsta viðskiptalandið á heimsvísu. Bæði Peking og Reykjavík hafa yfir miklum auðlindum að búa á sviði ferðaþjónustu, svo sem fallega náttúru og djúpar menningarrætur. Fyrir utan fallegt útsýni Reykjavíkur, sem er norðlægasta höfuðborg heims, er þar einnig að finna Þjóðminjasafn Íslands, Listasafn Íslands, Listasafn Einars Jónssonar og aðra sögulega og menningarlega mikilvæga staði. Beijing hefur verið höfuðborg Kína í 4 valdakynslóðir og varðveitir 7 heimsmenningararfssvæði, auk þess sem þar er að finna yfir 170 söfn með fjölmörgu áhugaverðu efni fyrir ferðamenn. Árið 2015 komu fleiri en 48.000 kínverskir ferðamenn til Íslands með næstum því 100% aukningu á milli ára. Við viljum nýta okkur tækifærið við þennan kynningarviðburð til að fræða fleiri Íslendinga um Kína og Peking.

Bakgrunnsupplýsingar
Um Framkvæmdastjórn Peking um þróun ferðamála
Framkvæmdastjórn Peking um þróun ferðamála er mikilvæg deild innan stjórnar Peking. Helstu ábyrgðarstörf hennar eru að gera áætlanir og stuðla að vexti ferðamannaiðnaðarins í Peking og að búa til og framkvæma stefnur sem hlúa að og hraða vexti ferðamannaiðnaðarins í Peking.

Beijing Zenith Interactive, Ltd.
June Chen
Tel: +8610-84177927
Email: June@zenith100.com
Website: www.zenith100.com
Nation: China

Myndir:

„Heillandi Peking“, ljósmyndasýning um ferðalög var haldin í Reykjavík þann 11 ágúst

„Heillandi Peking“, ljósmyndasýning um ferðalög var haldin í Reykjavík þann 11 ágúst

„Heillandi Peking“, ljósmyndasýning um ferðalög var haldin í Reykjavík þann 11 ágúst

„Heillandi Peking“, ljósmyndasýning um ferðalög var haldin í Reykjavík þann 11 ágúst

Follow EuropaWire on Google News
EDITOR'S PICK:

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *